Fyrstu skrefin

Komdu fyrirtækinu í gang í fimm einföldum skrefum.

Uppsetning á TimeEd tekur aðeins nokkrar mínútur. Hér er röðin sem við mælum með fyrir ný fyrirtæki.

1. Skráðu fyrirtækið

Fáðu prufuáskrift í 14 daga á www.timeed.is og skráðu þig inn á app.timeed.is.

2. Stilltu grunninn

Undir Stillingar velurðu hvaða einingar eru í notkun, skráir almennar upplýsingar fyrirtækisins og bætir við starfsfólki. Kerfið verður einfaldara ef þú slekkur á einingum sem þið notið ekki.

3. Stofnaðu viðskiptavini og verkefni

Búðu til viðskiptavini og verkefni og verkþætti. Þú getur líka stofnað verkþætti án verkefnis eða viðskiptavinar og gengið frá því síðar.

4. Komdu tímaskráningunni í gang

Láttu starfsfólkið sækja TimeEd appið og stimpla sig inn, í appinu, á vefnum eða í stimpilklukku á spjaldtölvu.

5. Tengdu bókhaldið og skoðaðu yfirsýnina

Tengdu bókhaldskerfið ykkar svo vinnustundir renni beint í reikninga, og fylgstu með stöðunni í vinnuskýrslunum.

Þarftu aðstoð við innleiðinguna? Þjónustan er innifalin og eitt námskeið fyrir hvert fyrirtæki er gjaldfrjálst.

Síðast uppfært: 27. júlí 2026

Tengdar greinar

Var þetta gagnlegt?