Mælaborðið

Yfirlit yfir vinnutíma, tilkynningar, stimpilklukku og nýlega verkþætti.

Mælaborðið er forsíðan í TimeEd og birtist þegar þú skráir þig inn. Þar sérðu stöðuna á þínum vinnudegi í fljótu bragði.

Mælaborðið í TimeEd

Það sem þú sérð á mælaborðinu

Stimpilklukka: stimplaðu þig inn og út með einum smelli. Þú sérð líka hvenær þú stimplaðir þig síðast inn og út og samtölu mánaðarins. Sjá nánar í flokknum Tímaskráning og stimpilklukka.

Vinnuyfirlit: súlurit yfir skráðan vinnutíma vikunnar. Súlurnar eru tvílitar: ljósblái hlutinn er tíminn sem stimpilklukkan mældi, dökkblái er tíminn sem skráður var á verkþætti. Þetta tvennt þarf ekki að standast á, enda mælir stimpilklukkan viðveru en verkþáttatíminn hvað var unnið. Með rofanum Mitt / Teymi skiptirðu á milli þess að sjá eigin tíma og tíma alls teymisins.

Tilkynningar: þegar þú ert nefnd(ur) í athugasemd eða nýr verkþáttur er stofnaður fyrir þig birtist tilkynning með hnappnum Skoða verkþátt.

Nýleg verkþættir: listi yfir verkþættina sem þú vannst síðast í. Græni hnappurinn í Byrja-dálknum ræsir tímaskráningu á verkþáttinn beint af mælaborðinu.

Valmyndin til vinstri

Öllum hlutum kerfisins er raðað í valmyndina vinstra megin: Mælaborð, Mínir verkþættir, Verkefni, Dagatal, Vinnuflæði, Viðskiptavinir, Vinnuskýrslur, Rafrænir reikningar, Frídagar, Starfsmenn og Stillingar. Stjórnandi getur kveikt og slökkt á einingum undir Stillingar → Eiginleikar, þannig að valmyndin getur litið mismunandi út milli fyrirtækja.

Leit og fleira efst til hægri

Efst í hægra horninu er leit, skjástilling, tilkynningabjalla og útskráning, nánar í Leit, tilkynningar og flýtileiðir. Bláa + takkann neðst í hægra horni má nota til að stofna nýjan verkþátt, verkefni eða viðskiptavin hvaðan sem er í kerfinu.

Síðast uppfært: 5. ágúst 2026

Tengdar greinar

Var þetta gagnlegt?