Undir Stillingar → Almennt eru kjörstillingar sem gilda fyrir allt fyrirtækið. Hér er hver rofi útskýrður.

Tímaskráning
- Bæta við tíma handvirkt: leyfir teyminu að handskrá tíma við verkþætti í stað þess að nota eingöngu stimpilklukkuna.
- Virkja stimpilklukku fyrir teymið: almenn stimpilklukka óháð verkþáttum, til að halda utan um venjulegan vinnutíma (t.d. 9–17). Ef þið notið stimpilklukkuna ekki og haldið eingöngu utan um tíma í verkþáttum mælum við með að slökkva á rofanum, þá hverfur klukkan úr viðmótinu og kerfið verður einfaldara.
- Virkja tíma rakningu á öppin (iOS / Android): GPS-skráning við stimplun í símanum. Hnitin sjá aðeins notandinn sjálfur og yfirmaður hans.
- Notandi þarf að skrifa athugasemd við útstimplun verkþátt: gerir athugasemd að skyldu við útstimplun.
- Útflutningur stimplunar: leyfir stjórnendum að senda stimpilklukkutíma beint í tengt launa- eða bókhaldskerfi. Rofinn birtist þegar slík tenging er til staðar.
Verkþættir
- Virkja merkimiða á verkþætti: kveikir á merkimiðakerfinu.
- Loka aðeins verkþætti fyrir úthlutaðan notanda: þegar verkefnastjóri lokar verkþætti lokast hann aðeins fyrir viðkomandi, ekki alla sem hafa fengið verkþáttinn úthlutaðan.
- Kveikja á stillingu fyrir reglulegar/áætlaðar tilkynningar: notandi fær tilkynningu þegar tímasettur verkþáttur á að hefjast.
Reikningar og vörur
- Virkja drög að reikningum í ytri bókhaldskerfum: reikningar verða til sem drög í t.d. Payday eða DK í stað þess að sendast strax.
- Sjálfgefin reikningsstaða verkefna: hvort ný verkefni séu sjálfgefið reikningshæf (útseld vinna) eða ekki.
- Birta vörur með núll eða neikvætt magn: sýnir birgðalausar vörur frá vörubirgjum bókhaldskerfa.