Að skrá sig inn

Innskráning á app.timeed.is með netfangi og lykilorði.

TimeEd á vefnum er á app.timeed.is. Sama innskráning gildir í TimeEd appinu og á spjaldtölvu.

Innskráningarsíða TimeEd

Svona skráir þú þig inn

  1. Opnaðu app.timeed.is í vafra.
  2. Sláðu inn netfangið þitt.
  3. Sláðu inn lykilorðið þitt.
  4. Smelltu á Halda áfram.

Gleymt lykilorð

Smelltu á Gleymt lykilorð? fyrir neðan innskráningarhnappinn, sláðu inn netfangið þitt og smelltu á Endurstilla lykilorð. Fylgdu svo leiðbeiningunum sem berast í tölvupósti.

Tungumál

Efst í hægra horni innskráningarsíðunnar geturðu valið tungumál viðmótsins. TimeEd er í boði á níu tungumálum, m.a. íslensku, ensku og pólsku. Hver notandi getur líka valið sitt tungumál á prófílnum sínum eftir innskráningu.

Vantar þig aðgang?

Stjórnandi fyrirtækisins getur stofnað nýja aðganga með því að bjóða nýjum notendum á síðunni Starfsmenn. Ef þig vantar aðgang skaltu hafa samband við stjórnanda TimeEd í þínu fyrirtæki.

Síðast uppfært: 5. ágúst 2026

Tengdar greinar

Var þetta gagnlegt?