Undir Starfsmenn stjórnarðu aðgangi fólks að TimeEd.

Listinn
Fliparnir Virkir notendur og Óvirkir notendur skipta starfsfólkinu upp. Hver lína sýnir nafn, notandanafn, starfsheiti og hvenær viðkomandi vann síðast verkþátt.
Að bjóða nýjum notanda
Nýjum notanda (starfsmanni) er bætt við með því að bjóða honum í tölvupósti:
- Smelltu á + Bjóða nýjum notanda efst til hægri.
- Sláðu inn netfang og upplýsingar starfsmannsins.
- Viðkomandi fær boð í tölvupósti og velur sér lykilorð.
Á meðan boðið bíður samþykkis er notandinn samt strax valanlegur í hópa og á verkþætti. Hann birtist svo í Virkir notendur þegar hann hefur klárað skráninguna.

Óvirkir notendur og endurvirkjun
Virkur-rofinn lengst til hægri gerir notanda óvirkan eða virkjar hann aftur. Óvirkur notandi getur ekki skráð sig inn, en tímaskráningar hans og saga haldast í skýrslum. Til að endurvirkja gamlan starfsmann ferðu í Óvirkir notendur og kveikir á rofanum.

Að eyða notanda
Opnaðu starfsmanninn og neðst á síðunni, við hlið Vista upplýsingar, er rauði hnappurinn Eyða notanda. Eyðing er varanleg. Ef starfsmaður er hættur er nær alltaf betra að gera hann óvirkan í staðinn, þá helst sagan og hann losar sæti í áskriftinni án þess að gögnin hverfi.

Stimpla út starfsmenn
Hnappurinn Stimpla út starfsmenn efst til hægri stimplar út þá sem gleymdu að stimpla sig út, sem er þægilegt í lok dags.
Nánar um hvern starfsmann
Smelltu á starfsmann til að opna síðuna hans. Sjá greinarnar Stillingar starfsmanns og Tímalína starfsmanns.