Til baka

Persónuvernd

Hjálparvefurinn hjalp.timeed.is

Vefurinn er opinn öllum og krefst engrar innskráningar.

Þegar þú lest hjálparvefinn vistum við engar persónuupplýsingar. Við teljum hvaða greinar eru lesnar og hvað er leitað að, en hvorki IP-tölu, auðkenni né neitt sem hægt er að rekja til þín. Persónuupplýsingar verða aðeins til ef þú sendir okkur fyrirspurn eða skrifar umsögn um grein.

Hvað er mælt

Við skráum hvaða greinar eru lesnar, hvað er leitað að, hvort leitin skilaði niðurstöðum, hvort grein var merkt gagnleg eða ekki, umsagnir sem fólk skrifar sjálfviljugt, á hvaða tungumáli síðan var skoðuð og af hvaða léni heimsóknin barst.

Við geymum hvorki IP-tölu, auðkenni notanda né neitt annað sem hægt er að rekja til einstaklings. Mælingarnar eru tölur um efnið en ekki um fólk, og þær eru eingöngu notaðar til að sjá hvaða greinar vantar og hverjar þarf að bæta. Þær eru aldrei notaðar í markaðslegum tilgangi og aldrei afhentar auglýsendum.

IP-tala er notuð í vinnsluminni þjónsins í örfáar sekúndur til að hemja sjálfvirkar beiðnir. Hún er hvergi vistuð.

Þegar grein er merkt ógagnleg býðst þér að skrifa stutta umsögn um hvað vantaði. Hún er valfrjáls og er vistuð eins og þú skrifar hana. Við biðjum ekki um persónuupplýsingar þar og mælum ekki með því að þú setjir þær inn. Kjósir þú samt að skrifa til dæmis netfangið þitt varðveitum við textann eins og hann berst, og eyðum persónuupplýsingum úr umsögnum verði þeirra vart.

Mælingarnar innihalda engar persónuupplýsingar og eru geymdar eins lengi og þær nýtast við að bæta efnið.

Hvað er geymt í vafranum þínum

Vefurinn setur enga vafraköku í eigin þágu. Í vafranum þínum eru fjögur gildi:

  • Eitt sem kemur í veg fyrir að sama heimsókn sé talin tvisvar og hverfur þegar þú lokar flipanum
  • Eitt sem man að þú hafir þegar gefið grein þumal, svo þú sért ekki spurður aftur
  • Eitt sem verður aðeins til ef þú velur sjálfur að vera ekki talinn með
  • Eitt sem verður aðeins til ef vafrinn þarf að endurhlaða síðuna eftir uppfærslu vefsins og hverfur þegar þú lokar flipanum

Öryggiskerfi vefsins (Cloudflare) setur eina nauðsynlega vafraköku sem er hluti af vörnum gegn vélmennum. Hún er ekki notuð til að fylgjast með þér.

Þegar þú sendir okkur fyrirspurn

Ef þú fyllir út „Hafðu samband“-formið berst okkur tölvupóstur með nafni þínu, netfangi, skilaboðunum og IP-tölu beiðninnar. IP-talan fylgir með svo við getum greint misnotkun á forminu. Póstsendingin fer gegnum bandaríska tölvupóstþjónustu (Postmark) sem er vottuð samkvæmt EU-US Data Privacy Framework.

Formið er varið með Cloudflare Turnstile sem staðfestir að um manneskju sé að ræða. Sú staðfesting sendir IP-tölu beiðninnar til Cloudflare.

Við notum þessar upplýsingar eingöngu til að svara þér og geymum þær ekki lengur en þörf krefur.

Hýsing

Vefurinn og gagnagrunnur hans eru hýst í Bretlandi, sem nýtur fullgildingarákvörðunar Evrópusambandsins um persónuvernd. Letur og allt efni vefsins er hýst af okkur sjálfum.