Undir Verkefni í valmyndinni er listi yfir öll verkefni fyrirtækisins.

Það sem listinn sýnir
Hvert verkefni sýnir stöðumerki (t.d. Opið), tengdan viðskiptavin, fjölda opinna verkþátta á móti heildarfjölda (t.d. 4 / 5) og síðustu virkni, þ.e. hvaða verkþáttur var síðast uppfærður og hvenær. Verkefni sem eru komin á eftir áætlun fá að auki rautt klukkutákn í listanum – sömu verkefni og birtast undir flipanum Á eftir áætlun.
Flipar og leit
Efst eru flipar til að sía listann: Öll, Opin, Í vinnslu, Lokið og Á eftir áætlun, með fjölda í hverjum flokki. Leitarreiturinn síar listann um leið og þú skrifar.
Að opna verkefni
Smelltu á verkefni til að sjá alla verkþætti þess. Þar eru sömu flipar (Opið, Í vinnslu, Lokið, Allt, Búið til af mér, Óúthlutað) og hnapparnir Breyta verkefni og Stofna verkþátt efst til hægri.

Mínir verkþættir
Í valmyndinni er líka Mínir verkþættir: síða sem safnar á einn stað verkþáttum sem snúa að þér, þvert á öll verkefni. Efst eru sömu flipar með fjöldatölum (Opið, Í vinnslu, Lokið, Allt, Búið til af mér, Óúthlutað) og leitarreitur. Trektartáknið opnar síuspjald þar sem þrengja má listann eftir Verkefni, Merkimiðum og Stofnað af.
Að stofna verkefni
Smelltu á + Stofna verkefni efst til hægri á verkefnalistanum. Verkefni fær nafn, tengist viðskiptavini og fær auðkennisforskeyti sem verkþættir þess erfa (t.d. verða verkþættir í „borgir.is" BOR-1, BOR-2 o.s.frv.). Undir Stillingar → Sniðmát má líka búa til verkefnasniðmát með fyrirfram skilgreindum verkþáttum.
Að eyða verkefni
Opnaðu verkefnið og smelltu á Breyta verkefni efst til hægri. Neðst á breytingasíðunni er rauði hnappurinn Eyða verkefni.

Staðfestingargluggi birtist áður en eytt er. Hafðu í huga að allir verkþættir verkefnisins eyðast með því og aðgerðin verður ekki afturkölluð. Viljirðu halda sögunni, t.d. vegna vinnuskýrslna eða reikninga, er betra að merkja verkefnið Lokið í stað þess að eyða því.
