Vinnuskýrslur → Verkþættir er aðalskýrslan í TimeEd. Þar sérðu alla skráða tíma valins tímabils.

Yfirlitin efst
Yfirlit fyrir starfsmenn dregur saman tíma hvers starfsmanns á tímabilinu: fjölda unninna verkþátta, dagvinnu, yfirvinnu, næturvinnu, hádegismat og samtölu. Yfirlit fyrir verkefni sýnir sömu samtölur eftir verkefnum. Sjá nánar hnappurinn opnar allar línur.
Sundurliðunin
Fyrir neðan yfirlitin er hver dagur sundurliðaður: hver færsla sýnir starfsmann, verkefni, viðskiptavin, verkþátt, tímabil (Byrjar / Endar), dagvinnu, yfirvinnu og samtölu. Athugasemdir sem starfsfólk skrifaði við útstimplun birtast undir færslunum. Neðst í hverjum degi er Samtals dagar og allra neðst samtala alls tímabilsins.
GPS-hnit inn- og útstimplunar
Sé stimplað inn og út í TimeEd appinu með staðsetningu virka fylgja GPS-hnit tímafærslunni. Þá birtist lítið kortamerki í línunni, á milli verkþáttarheitisins og Byrjar / Endar reitsins.

Merkið sést aðeins á færslum sem eiga skráð hnit. Tímar sem eru skráðir á vefnum, eða þar sem slökkt var á staðsetningu í símanum, eru merkjalausir.
Smelltu á merkið til að opna kortið. Græna merkið sýnir hvar stimplað var inn og það rauða hvar stimplað var út, með klukkutímanum á hvoru fyrir sig. Map og Satellite skipta um kortagerð og hnappurinn í efra hægra horninu stækkar kortið.

Kveikt er á GPS-skráningu undir Stillingar → Almennt → Virkja tíma rakningu á öppin, og notandinn þarf sjálfur að heimila staðsetningaraðgang í símanum. Staðsetning er eingöngu skráð á því augnabliki sem stimplað er inn eða út, aldrei á meðan tímaskráning er í gangi. Nánar um það hvernig farið er með þessi gögn í Öryggi, persónuvernd og gagnavarsla.
Að lagfæra tíma
Smelltu beint á tímana í Byrjar / Endar dálknum til að leiðrétta færslu, eða notaðu + hnappinn efst til hægri til að skrá nýja færslu. Sjá nánar í flokknum Tímaskráning og stimpilklukka.