Það eru tvær leiðir til að skrá tíma í TimeEd: almenna stimpilklukkan og tímaskráning á tiltekinn verkþátt.
Stimpilklukkan á mælaborðinu
Á mælaborðinu er stimpilklukku-spjald sem sýnir síðustu virkni þína: hvenær þú byrjaðir, hættir og samtölu mánaðarins.

- Smelltu á græna hnappinn STIMPLA MIG INN til að hefja vinnudaginn.
- Hnappurinn breytist í rauðan teljara sem sýnir líðandi tíma.
- Í lok dags smellirðu á rauða hnappinn til að stimpla þig út.

Almenna stimpilklukkan er óháð verkþáttum og hentar til að halda utan um venjulegan vinnutíma. Stjórnandi kveikir á henni fyrir teymið undir Stillingar → Almennt → Virkja stimpilklukku fyrir teymið.
Tímaskráning á verkþátt
Til að skrá tíma á tiltekið verk ýtirðu á græna Byrja-hnappinn við verkþáttinn, hvort sem er á mælaborðinu, í Mínir verkþættir eða inni á verkþættinum sjálfum (Hefja verkþátt).
Á meðan tímaskráning er í gangi birtist verkþátturinn efst á skjánum með teljara og rauðum stöðvunarhnappi, sama hvar þú ert í kerfinu. Þú sérð líka undir Tengdir notendur í valmyndinni hver er að vinna í hverju.
Stimpilklukka á spjaldtölvu
Stimpilklukkuna má einnig keyra sem sjálfstæða lausn á spjaldtölvu, t.d. við innganginn á vinnustaðnum, þar sem allt starfsfólk stimplar sig inn og út á sama skjánum.
Svona er hún sett upp:
- Búðu til notanda með skráðu farsímanúmeri. Yfirleitt er það eigandinn (owner).
- Opnaðu TimeEd á spjaldtölvunni og veldu innskráningu með símanúmeri.
- SMS-kóði (OTP) berst á númerið. Sláðu hann inn og stimpilklukkan er tilbúin.
Eftir innskráninguna er spjaldtölvan sameiginleg stimpilstöð og þarf ekki að skrá sig inn aftur dags daglega.
GPS í appinu
Í TimeEd appinu er hægt að kveikja á GPS-skráningu við inn- og útstimplun, og færslurnar fá þá kortamerki í vinnuskýrslunni. Sjá GPS-hnit í verkþáttaskýrslunni.