Stimpilklukkan í appinu

Stimplaðu þig inn og út í símanum og fylgstu með stundvísi og heildarviðveru dagsins.

Flipinn Stimpilklukka neðst í appinu, og samnefndur liður í valmyndinni, er vinnudagurinn þinn: þar stimplarðu þig inn að morgni og út í lok dags.

Stimpilklukkan í appinu

Reitirnir fjórir

  • Skráður inn: hvenær þú stimplaðir þig inn í dag. Stendur Ekki ennþá þar til þú byrjar.
  • Skráður út: hvenær þú stimplaðir þig út.
  • Stundvísi: hvernig mætingin var miðað við vaktina þína.
  • Heildarviðvera: samtals viðvera dagsins.

Að stimpla sig inn og út

  1. Opnaðu Stimpilklukku.
  2. Smelltu á græna hnappinn, Stimpla mig inn.
  3. Í lok dags smellirðu aftur á hnappinn til að stimpla þig út.

Undir hnappinum stendur Síðast unnið með dagsetningu og tíma síðustu stimplunar, svo þú sérð strax ef þú gleymdir að stimpla þig út.

Klukkan í gangi

Á meðan þú ert stimplaður inn verður hnappurinn rauður og teljarinn undir honum sýnir hve lengi vinnudagurinn hefur staðið. Efst stendur Vinnudagur í gangi..., reiturinn Skráður inn fær tímann þinn og hinir fyllast þegar deginum lýkur. Í lok dags smellirðu á rauða hnappinn til að stimpla þig út.

Stimpilklukkan í gangi

GPS-leyfið

Í fyrsta sinn sem stimplað er inn með GPS-skráningu virka biður síminn um leyfi til að nota staðsetningu. Veldu While using the app, þá notar appið staðsetninguna aðeins á meðan það er opið, við inn- og útstimplun.

GPS-leyfisglugginn

Hafi stjórnandi kveikt á GPS-skráningu skráir appið staðsetningu við inn- og útstimplun. Hnitin sjást í vinnuskýrslunni á vefnum, sjá Verkþáttaskýrslur.

Stimplanir úr appinu fara í sömu stimpilklukkuskýrslu og stimplanir úr spjaldtölvunni og af vefnum.

Síðast uppfært: 30. júlí 2026

Tengdar greinar

Var þetta gagnlegt?