Neðst í valmynd appsins stendur nafnið þitt. Smelltu á það til að opna Prófílinn minn.

Fylltu út alla reiti
Smelltu á myndavélartáknið á hringnum til að hlaða inn prófílmynd og fylltu út alla reiti:
- Hlutverk: frjáls texti sem allir í teyminu sjá, t.d. Framkvæmdastjóri, Pípari eða Rafvirki.
- Gælunafn: valfrjálst, styttra nafn sem þú vilt láta nota í daglegu tali.
- Kennitala: þarf að vera rétt skráð svo launavinnsla og skjöl fyrirtækisins vísi á réttan starfsmann.
- Lykilorð: sama lykilorð og á vefnum app.timeed.is, breyting í appinu gildir líka þar.
- Sími: með skráðu farsímanúmeri geturðu næst skráð þig inn með SMS-kóða í stað lykilorðs, sjá Innskráning í appinu.
Þegar þú breytir einhverju í prófílnum birtist Vista efst til hægri, smelltu á það svo breytingin taki gildi.
Tungumál
Í reitnum Tungumál skiptirðu um mál viðmótsins og TimeEd er til á níu tungumálum. Staðfestu valið með Vista efst til hægri. Stillingin er vistuð á notandanum þínum, ekki símanum, og gildir því líka þegar þú skráir þig inn á vefnum.
Tími á læstum skjá (iPhone)
Á iPhone er rofinn Birta verkþátts tíma í læstum skjá í prófílnum. Kveiktu á honum og veldu Allow þegar síminn spyr; líðandi tími verkþáttarins birtist þá á læsta skjánum og þú gleymir síður að stimpla þig út. Þessi möguleiki er enn sem komið er aðeins í iPhone-útgáfunni.

Að skipta um teymi
Örvarnar tvær efst til hægri í prófílnum skipta um teymi. Sama netfangið getur verið skráð hjá fleiri en einu fyrirtæki, t.d. verktaki sem vinnur fyrir tvö fyrirtæki, og hér hopparðu á milli teyma án þess að skrá þig út.

Útskrá
Neðst á prófílskjánum er Útskrá sem skráir þig út af appinu á þessu tæki.
