Verkþættir í appinu

Finna verkþátt, hefja vinnu, bæta við tíma, vörum og merkimiðum.

Mínir verkþættir

Flipinn Mínir verkþættir sýnir verkþættina þína sem spjöld með stöðu, merkimiðum, verkefni og auðkenni. Leitarreiturinn efst leitar eftir verkþáttanúmeri eða heiti verkþáttar.

Mínir verkþættir í appinu

Leitin skilar niðurstöðum um leið og þú skrifar, hér er leitað að verkþáttanúmerinu LLS:

Leit í verkþáttum

Leitin er í hverju svæði fyrir sig: í Mínum verkþáttum leitarðu að verkþáttum, í Viðskiptavinum að viðskiptavinum og í Verkefnum að verkefnum.

Verkþáttarsíðan

Smelltu á verkþátt til að opna hann:

Verkþáttur í appinu

  • Hefja verkþátt: græni hnappurinn ræsir tímaskráningu á verkþáttinn.
  • Bæta við vöru: skráðu efni og vörur á verkið, eins og á vefnum.
  • Sjá nánar: örin efst felur og sýnir upplýsingalínurnar, þar á meðal Úthlutað til (ábyrgðaraðili) og Tíma eytt (samtals skráður tími).
  • Viðhengi: myndir og skjöl sem fylgja verkþættinum; smelltu til að skoða.
  • Neðst: Bæta við tíma (handvirk skráning), Aðgerðir og Merkimiðar.

Bæta við tíma

Bæta við tíma skráir tíma á verkþáttinn eftir á. Efst er röð flýtihnappa, 15 mín., 30 mín., 45 mín., 1 klst. og áfram; strjúktu röðinni til hliðar og hún nær upp í 8 klst. Einn smellur fyllir tímabilið, en þú getur líka slegið inn Byrja og Stoppa handvirkt. Athugaðu að verklýsing þarf að fylgja færslunni, án lágmarkstexta í reitnum vistast hún ekki.

Bæta við tíma í appinu

Aðgerðir: breyta eða loka verkþætti

Hnappurinn Aðgerðir opnar spjald með tveimur leiðum: Breyta verkþátt og Verkþátt lokið, sem lokar verkinu beint.

Aðgerðaspjald verkþáttar

Á breytingaskjánum breytirðu heiti, verkefni, starfsmanni og verklýsingu, kveikir eða slekkur á Reikningshæft og hleður inn mynd með Bæta við mynd. Þar má líka opna lokaðan verkþátt aftur.

Breyta verkþætti í appinu

Merkimiðar

Merkimiðar opnar spjaldið Veldu merkimiða til að bæta við. Merkimiðar gera verkin finnanlegri: þú síar lista eftir þeim, sérð í fljótu bragði hvað bíður og flokkar skýrslur. Þeir virka best fáir og skýrir, við mælum með að fyrirtækið haldi sig við tíu merkimiða eða færri í heildina. Nánar í Merkimiðar.

Veldu merkimiða til að bæta við

Athugasemdir

Neðar á verkþáttarsíðunni er athugasemdaþráðurinn, sami þráður og á vefnum. Þú getur svarað athugasemdum beint í appinu:

Athugasemdir í appinu

Myndavélartáknið við innsláttarreitinn setur mynd í athugasemdina, t.d. af stöðu verksins:

Mynd sett í athugasemd

Skrifaðu @ og nafn til að merkja samstarfsfélaga; viðkomandi fær þá tilkynningu í símann sinn. Þrípunktarnir á athugasemd opna Breyta athugasemd og Eyða athugasemd, en aðeins á þínum eigin athugasemdum, athugasemdum annarra getur enginn breytt.

Breyta eða eyða eigin athugasemd

Síðast uppfært: 5. ágúst 2026

Tengdar greinar

Var þetta gagnlegt?