Verkþáttaskýrslur í appinu

Skoðaðu skráða tíma eftir dögum og bættu við tíma í símanum.

Undir Vinnuskýrslur í valmynd appsins sérðu verkþáttaskýrsluna þína.

Verkþáttaskýrslur í appinu

Svona virkar það

  • Veldu mánuð efst og dag í vikustikunni. Punktur undir degi táknar skráðan tíma.
  • Hver færsla sýnir verkþáttinn, auðkenni, verkefnið og tímabilið (t.d. 08:40–11:50), ásamt samtölu dagsins efst til hægri.
  • Bæta við tíma + hnappurinn neðst skráir tíma handvirkt á verkþátt. Eins og á vefnum þarf stillingin Bæta við tíma handvirkt að vera virk.

Þetta er yfirlit yfir þína eigin tíma og hér lagfærirðu þá líka: breyttu færslu eða bættu nýrri við ef gleymst hefur að skrá.

Að velja tímabil

Smelltu á mánuðinn efst til vinstri (t.d. Júlí 2026) og dagatalið opnast. Veldu fyrsta og síðasta dag tímabilsins, t.d. 1. til 28., og smelltu á Leita; talan á hnappnum sýnir fjölda færslna á tímabilinu. Endurstilla hreinsar valið.

Dagatalið í verkþáttaskýrslum

Að breyta og eyða tímafærslu

Smelltu á færslu í skýrslunni og svo á Breyta tíma. Þá opnast skjár þar sem þú lagfærir dagsetninguna, upphafs- og lokatímann og verklýsinguna. Vistaðu svo með bláa hnappnum.

Að breyta tímafærslu

Neðst er rauði hnappurinn Eyða tímafærslu. Aðeins eigandi eða verkefnastjóri getur eytt færslum; almennur starfsmaður getur aðeins breytt þeim. Eyðingin verður ekki afturkölluð.

Stimpilklukkuskýrslan

Liðurinn Vinnuskýrslur í valmyndinni hefur tvo undirliði: Verkþáttaskýrslur, sem lýst er hér að ofan, og Stimpilklukka. Sá síðarnefndi sýnir inn- og útstimplanir þínar eftir dögum, svo þú getur alltaf flett upp hvenær þú mættir og fórst. Þetta er sama yfirlit og stjórnandi sér í stimpilklukkuskýrslunni á vefnum, bara þínar eigin stimplanir.

Stimpilklukkuskýrslan í appinu

Smelltu á stimplun í listanum og svo á Breyta tíma. Sami skjár opnast og fyrir tímafærslur; þar lagfærirðu inn- og útstimplunartímann eða eyðir stimpluninni með rauða hnappnum (aðeins eigandi og verkefnastjórar).

Að breyta stimpilklukkufærslu

Skýrslurnar eru þær sömu og á vefnum, svo allt sem þú skráir í símanum skilar sér beint í vinnuskýrslur og reikningagerð fyrirtækisins.

Síðast uppfært: 5. ágúst 2026

Tengdar greinar

Var þetta gagnlegt?