Undir Vinnuskýrslur → Stimpilklukka sérðu allar stimplanir teymisins, óháð verkþáttum, þ.e. almennu stimpilklukkuna sem heldur utan um viðveru.

Síur og tímabil
Veldu dagsetningarbil með dagatalsvalinu og afmarkaðu við tiltekna starfsmenn með Úthlutað til. Hreinsa núllstillir allar síur.
Að bæta við tíma
Smelltu á Bæta við tíma efst til hægri, t.d. ef starfsmaður gleymdi að stimpla sig inn. Veldu starfsmann, dagsetningu og upphafs- og lokatíma og staðfestu.

Að breyta eða eyða stimplun
Stimplunum er breytt á sama hátt og öðrum tímafærslum: smelltu á tímana í Byrjar / Endar-dálknum, lagaðu gildin í glugganum sem opnast, eða eyddu færslunni með rauða hnappnum. Skrefin eru rakin í Að leiðrétta skráða tíma.


Grænt tákn aftast í línu þýðir að tímanum var bætt við handvirkt og appelsínugult að honum hefur verið breytt eftir á. Færðu músina yfir appelsínugula táknið til að sjá upprunalega tímann. Nánar í Táknin í skýrslunni.

Excel og launakerfi
Excel-hnappurinn flytur skýrsluna út í Excel-skjal, t.d. fyrir launavinnslu. Í útflutningsgreininni sérðu svo hvernig stimplanir eru fluttar beint í tengt launakerfi.