Mælaborðið í appinu

Tímar dagsins og mánaðarins, nýlegir verkþættir og valmyndin.

Þegar þú opnar TimeEd appið birtist mælaborðið.

Mælaborðið í TimeEd appinu

Það sem þú sérð

  • TÍMI Í DAG (blái hringurinn): skráður tími dagsins.
  • TÍMAR Í MÁNUÐI (appelsínuguli hringurinn): samtala mánaðarins.
  • Nýlegir verkþættir: verkþættirnir sem þú vannst síðast í, með stöðu, merkimiðum og auðkenni. Smelltu á verkþátt til að opna hann.
  • Stofna verkþátt +: blái hnappurinn neðst stofnar nýjan verkþátt beint úr appinu.

Neðst er flipastikan: Mælaborð, Stimpilklukka, Mínir verkþættir og Verkefni. Bjallan efst til hægri sýnir tilkynningar.

Valmyndin

Strikin efst til vinstri opna aðalvalmyndina:

Valmyndin í appinu

Þar kemstu í Mælaborð, Stimpilklukku, Mína verkþætti, Viðskiptavini, Verkefni, Vinnuskýrslur, Tilkynningar og Upplýsingar, með fjöldateljara við hvern lið. Neðst sérðu innskráða notandann og efst útgáfunúmer appsins.

Tilkynningar

Bjallan efst til hægri og liðurinn Tilkynningar í valmyndinni opna tilkynningalistann. Rauður punktur á bjöllunni þýðir að ólesin tilkynning bíður þín.

Rauður punktur á bjöllunni

Þegar samstarfsfélagi nefnir þig með @ í athugasemd á verkþætti færðu tilkynningu í símann og hún birtist í listanum, t.d. Nafn þitt var nefnt í TÍF-3 athugasemdum af @Elín. Smelltu á tilkynninguna til að opna verkþáttinn. Sé ekkert nýtt stendur Þú hefur engar tilkynningar.

Tilkynningar í appinu

Síðast uppfært: 30. júlí 2026

Tengdar greinar

Var þetta gagnlegt?