Appið býður tvær innskráningarleiðir. Veldu þá sem hentar þér á upphafsskjánum.

Innskráning með símanúmeri (SMS-kóði)
Fljótlegasta leiðin í appinu (ekkert lykilorð):
- Veldu Innskráning með símanúmeri.
- Sláðu inn símanúmerið þitt (t.d. +354 …) og smelltu á Senda SMS.
- Þú færð SMS frá TimeEd með fjögurra stafa staðfestingarkóða (OTP).
- Sláðu kóðann inn og smelltu á Staðfesta. iPhone býðst yfirleitt til að fylla kóðann inn sjálfkrafa úr skilaboðunum.

Innskráning með netfangi
Sama innskráning og á vefnum:
- Veldu Innskráning með netfang.
- Sláðu inn netfangið og lykilorðið þitt.
- Smelltu á Innskrá.

SMS-innskráningin er í appinu og í stimpilklukkunni á spjaldtölvu. Á vefnum (app.timeed.is) er skráð inn með netfangi og lykilorði. Símanúmerið þitt þarf að vera skráð hjá notandanum þínum í TimeEd svo kóðinn skili sér.
Eitt farsímanúmer, eitt tæki: af öryggisástæðum getur hvert farsímanúmer aðeins verið innskráð með SMS-kóða á einu tæki í einu, hvort sem það er TimeEd-farsímaappið eða stimpilklukkan á spjaldtölvu. Sé númerið notað á nýju tæki losnar innskráningin á því fyrra. Stjórnendur sem þurfa hvort tveggja leysa það svona: skráðu þig í farsímaappið með netfangi og lykilorði og hafðu ekkert farsímanúmer á þínum aðgangi. Búðu svo til sérstakan notanda með eigið farsímanúmer fyrir spjaldtölvuna.
Kynningarskjáirnir
Við fyrstu innskráningu leiðir appið þig í gegnum stutta kynningu á grunnskrefunum: að stofna viðskiptavin (beintengt við Þjóðskrá og Fyrirtækjaskrá), stofna verkefni og stofna fyrsta verkþáttinn. Þú getur flett í gegn eða smellt á Loka og byrjað strax.
