Verkþáttarsíðan

Aðgerðir, tími, vörur, athugasemdir og skrár á verkþáttarsíðunni.

Verkþáttarsíðan er miðstöð hvers verks. Efst er heiti verkþáttarins, staða hans og hver bjó hann til.

Verkþáttarsíða

Verkþáttsnúmerið

Hver verkþáttur fær sjálfkrafa einkvæmt númer þegar hann er stofnaður. Forskeytið kemur frá verkefninu og talan er hlaupandi: sé verkefnið Miðvangur 1 stofnað fær fyrsti verkþátturinn númerið MID-1, sá næsti MID-2 og svo koll af kolli. Þú þarft aldrei að finna upp númer sjálfur og ekkert númer er notað tvisvar.

Númerið er fljótlegasta leiðin til að vísa á rétt verk. Sláðu það inn í leitina og þú stekkur beint á verkþáttinn, nefndu það í athugasemd eða símtali svo allir tali um sama verkið, og á vinnuskýrslum og reikningum sést nákvæmlega hvaða verkþáttur liggur að baki hverri línu.

Aðgerðirnar efst

  • Hefja verkþátt: ræsir tímaskráningu á verkþáttinn.
  • Merktu sem lokið: lokar verkþættinum.
  • Breyta verkþátt: opnar breytingasíðuna (nafn, úthlutun, verð o.fl.).
  • Bæta við tíma: handvirk tímaskráning eftir á.

Lykilupplýsingar verkþáttarins

Undir aðgerðunum sérðu Úthlutað til (hvaða starfsmaður ber ábyrgð), Tíma (samtals skráðan tíma), Búin til og Uppfært dagsetningar og Stöðu, t.d. hvort verkþátturinn sé reikningshæfur eða ekki.

Tíminn er meira en tala: smelltu beint á hann og þú ferð í verkþáttavinnuskýrsluna, afmarkaða við þennan verkþátt, þar sem hægt er að skoða, breyta eða eyða einstökum tímafærslum. Skrefin eru rakin í Að leiðrétta skráða tíma.

Smelltu á tímann til að opna vinnuskýrslu verkþáttarins

Merkimiðar

Smelltu á + Merkimiðar undir heitinu til að merkja verkþáttinn, t.d. „High Priority", „Bug" eða „iOS". Merkin auðvelda síun í listum, vinnuflæði og skýrslum, nánar í Merkimiðar.

Vörur

Með Bæta við vörum tengirðu vörur við verkþáttinn, sjá greinina Vörur á verkþætti.

Lýsing, athugasemdir og skrár

Fyrir neðan upplýsingalínuna er verklýsingin, svo athugasemdaþráður þar sem teymið getur rætt verkið. Hægt er að nefna samstarfsfólk með @notandanafni. Viðkomandi fær þá tilkynningu. Neðst er + Bæta við skrá til að hengja myndir eða skjöl við verkþáttinn.

Smelltu á mynd í viðhengjunum til að opna hana stærri. Örvarnar sitt hvorum megin fletta milli mynda og X-ið lokar. Hlekkurinn Sækja öll viðhengi í eina zip skrá hleður öllum viðhengjum verkþáttarins niður í einu.

Viðhengi á verkþætti

Þú getur breytt eða eytt eigin athugasemdum: færðu músina yfir athugasemdina og blýants- og ruslatunnutáknin birtast hægra megin.

Breyta eða eyða athugasemd

Að afrita verkþátt

Ábendingin efst á síðunni bendir á afritunartáknið við heiti verkþáttarins. Með því geturðu afritað verkþáttinn fyrir annan notanda.

Ábendingin og afritunartáknið við heiti verkþáttarins

Síðast uppfært: 30. júlí 2026

Tengdar greinar

Var þetta gagnlegt?