Smelltu á Breyta verkþátt á verkþáttarsíðunni til að opna breytingasíðuna.

Reikningshæft og fast verð
Rofinn Reikningshæft stýrir því hvort vinnan á verkþættinum fari á reikning. Þegar kveikt er á honum birtist reiturinn Fast verð. Ef þú slærð inn upphæð þar er hún rukkuð fyrir verkþáttinn í stað útseldrar vinnu á tímagjaldi.
Sjálfgefna reikningsstöðu nýrra verkefna má stilla undir Stillingar → Almennt → Sjálfgefin reikningsstaða verkefna.
Verkefni, úthlutun og skiladagur
- Verkefni: færðu verkþáttinn milli verkefna.
- Úthlutað til notanda: veldu starfsmanninn sem ber ábyrgð á verkinu. Velja má fleiri en einn í einu, og jafnvel heilan hóp, þá fá allir í hópnum verkþáttinn.
- Ætti klárast fyrir: settu skiladag á verkþáttinn.
Bæta við dagatal
Kveiktu á Bæta við dagatal til að láta verkþáttinn birtast á dagatalinu. Þá velurðu upphafsdag og -tíma, lokadag og -tíma, eða Allan daginn. Svona skipuleggurðu hvenær verkið á að vinnast og hverjir sjá það á dagatali teymisins.
Verklýsing, skrár og eyðing
Neðst er verklýsingin sjálf og + Bæta við skrá til að hengja myndir og skjöl við verkþáttinn. Þú getur líka dregið skrár beint inn á svæðið. Myndir birtast sem smámyndir og X-ið á smámynd fjarlægir hana. Uppfæra verkþátt vistar breytingarnar.

Að eyða verkþætti
Neðst á breytingasíðunni, við hlið Uppfæra verkþátt, er rauði hnappurinn Eyða verkþátt.

Þegar smellt er á hann birtist staðfestingargluggi. Athugaðu að eyðingin er varanleg: hún verður ekki afturkölluð, og skráðir tímar á verkþáttinn hverfa úr yfirlitum. Ef verkinu er einfaldlega lokið er oftast betra að merkja verkþáttinn Lokið og halda þannig sögunni.
