Vinnuflæði sýnir verkþættina sem spjöld á töflu og raðar þeim í dálka eftir því hvar þeir standa í vinnuferlinu. Í stað þess að fletta upp stöðu hvers verkþáttar sér allt teymið á einu augnabliki hvað bíður, hvað er í gangi og hvað er búið.

Taflan er sameiginleg fyrir fyrirtækið, ekki hvert verkefni fyrir sig, svo verkþættir úr öllum verkefnum raðast á sömu dálkana. Þú afmarkar svo útsýnið með síunum efst.
Hvernig taflan virkar
Þú býrð til dálkana sjálfur og þeir eru einfaldlega þau þrep sem vinnan fer í gegnum hjá þínu fyrirtæki. Dæmi um uppsetningu: Í bið, Í vinnslu, Í yfirferð og Lokið.
Verkþáttur færist milli þrepa með því að draga spjaldið úr einum dálki í annan. Spjaldið helst þar sem því er sleppt, fyrir alla í teyminu, þangað til einhver færir það aftur.
Hver dálkur getur líka verið tengdur stöðu verkþáttar. Þegar spjald er dregið í dálk sem er tengdur stöðunni Í vinnslu fær verkþátturinn þá stöðu sjálfkrafa, án þess að nokkur opni hann. Þannig helst taflan og staða verkþáttarins í takt, hvort sem unnið er á töflunni eða inni í verkþættinum sjálfum.
Spjöldin
Hvert spjald sýnir heiti verkþáttarins, auðkennið (t.d. RÍN-4), merkimiðana sem á honum eru og mynd þess sem hann er úthlutaður á. Smelltu á spjald til að opna verkþáttinn sjálfan með lýsingu, tímum og athugasemdum.
Talan við hlið dálkheitisins sýnir hversu margir verkþættir eru í dálknum, sem er fljótleg leið til að sjá hvar vinnan safnast upp.
Að búa til dálk
Smelltu á + Búa til nýjan dálk efst til hægri. Þá opnast lítið form fyrir ofan töfluna:

- Nafn dálksins, t.d. „Í yfirferð".
- Sjálfvirkni: veldu Opið, Í vinnslu eða Lokið ef verkþættir eiga að fá þá stöðu þegar þeir eru dregnir í dálkinn. Veldu Ekkert valið ef dálkurinn á aðeins að vera til skipulags og á ekki að breyta stöðu.
- Litur: smelltu á litareitinn og veldu úr litaspjaldinu. Liturinn birtist sem rönd við dálkheitið og gerir töfluna fljótlesnari.
Smelltu á Búa til til að vista, eða Hætta við til að hverfa frá.
Að breyta dálki eða eyða honum
Þriggja punkta táknið hægra megin við dálkheitið opnar valmynd með fjórum aðgerðum:
- Fjarlægja verkþætti tekur verkþættina úr dálknum en eyðir þeim ekki.
- Breyta dálki opnar sama form og að ofan svo þú getir lagað nafn, lit eða sjálfvirkni.
- Eyða dálki fjarlægir dálkinn af töflunni. Verkþættirnir sjálfir hverfa ekki, þeir eru einfaldlega ekki lengur á töflunni.
- Hreinsa út alla verkþætti tæmir dálkinn í einu lagi.
Síur
Efst á síðunni eru fellilistar: Verkefni, Stofnað af, Úthlutað til, Staða og Merkimiðar. Þeir vinna saman, svo þú getur t.d. séð aðeins verkþætti eins verkefnis sem eru úthlutaðir tilteknum starfsmanni og merktir Forgangi. Síurnar hafa bara áhrif á það sem þú sérð, ekki það sem aðrir sjá.
Hverjir sjá töfluna
Vinnuflæðið birtist í valmyndinni hjá þeim sem hafa heimild á það. Sjáist það ekki hjá starfsmanni þarf að kveikja á eiginleikanum, sjá eiginleika í stillingum.