Notaðirðu efni eða vörur í verkið? Skráðu þær beint á verkþáttinn svo þær gleymist ekki þegar reikningurinn er gerður.

Að bæta vörum við verkþátt
- Opnaðu verkþáttinn og smelltu á Bæta við vörum.
- Vöruspjaldið opnast hægra megin. Leitaðu að vöru í leitarreitnum.
- Stilltu magn með + og − hnöppunum við vöruna.
- Verðið (m/vsk.) birtist við hverja vöru og samtala valinna vara neðst.
- Smelltu á Vista breytingar.
Upplýsingatáknið við vöru sýnir vörulýsinguna.
Hvaðan koma vörurnar?
Vörulistinn kemur úr tengdu bókhaldskerfi (t.d. DK eða Payday) í gegnum vörubirgja. Undir Stillingar er hægt að fela birgja sem eiga ekki að sjást í TimeEd (Faldir birgjar), og rofinn Birta vörur með núll eða neikvætt magn (Stillingar → Almennt) stýrir því hvort birgðalausar vörur birtist.