Að leiðrétta skráða tíma

Breyttu upphafs- og lokatíma færslna í vinnuskýrslunni.

Skráðum tímum má breyta eftir á í vinnuskýrslunum.

Svona leiðréttir þú tíma

  1. Farðu í Vinnuskýrslur → Verkþættir.
  2. Finndu færsluna sem þarf að laga. Hver færsla sýnir starfsmann, verkþátt og tímabilið í dálknum Byrjar / Endar.
  3. Smelltu beint á tímana í Byrjar/Endar-dálknum.

Smelltu á tímana í Byrjar/Endar-dálknum

Þá opnast gluggi þar sem þú slærð inn rétt gildi og staðfestir með Breyta tíma.

Breyta tíma á verkþætti

Í sama glugga getur verkefnastjóri eða eigandi líka eytt færslunni alveg með rauða hnappnum ef hún var skráð fyrir mistök, bæði eigin færslum og annarra. Almennur starfsmaður getur breytt færslum en ekki eytt þeim. Sama gildir um stimpilklukkufærslur í stimpilklukkuskýrslunni.

Kerfið minnir á þetta efst í skýrslunni: „Vissir þú að þú getur smellt á Byrjar / Endar tímana til að breyta þeim handvirkt?"

Táknin í skýrslunni

Aftast í línu getur birst lítið tákn sem sýnir hvernig færslan varð til:

  • Grænt tákn þýðir að tímanum var bætt við handvirkt, hann kom ekki úr stimplun eða tímaskráningu starfsmanns.
  • Appelsínugult tákn þýðir að tímanum hefur verið breytt eftir á. Færðu músina yfir táknið til að sjá upprunalega tímann, t.d. „Tíma hefur verið breytt frá 0:00 til 1:28".

Grænt tákn: tíma bætt við handvirkt

Appelsínugult tákn: tíma hefur verið breytt

Lína án tákns er óbreytt stimplun eða tímaskráning eins og starfsmaðurinn skráði hana. Þannig sérð þú alltaf hverju hefur verið hnikað til eftir á, gott fyrir gagnsæi gagnvart starfsfólki og við launavinnslu.

Að breyta athugasemd

Athugasemd færslunnar birtist undir línunni í skýrslunni. Smelltu beint á textann og glugginn Breyta athugasemd opnast, þar lagarðu textann og staðfestir með Vista.

Breyta athugasemd glugginn

Hver má leiðrétta?

Réttindin fylgja stillingunni Bæta við tíma handvirkt (Stillingar → Almennt). Þegar kveikt er á henni getur teymið handskráð og lagfært tíma við verkþætti. Athugasemdir sem fylgja færslum sjást í skýrslunni, svo gott er að skrá ástæðu leiðréttingar í athugasemd.

Síðast uppfært: 5. ágúst 2026

Tengdar greinar

Var þetta gagnlegt?