Undir Stillingar → Stimpilklukka skilgreinirðu vinnutímann sem stimpilklukkan miðar við, fyrir hvern vikudag fyrir sig.

Tímabil dagsins
Opnaðu vikudag til að sjá tímabil hans. Fyrsta tímabil dagsins heitir Dagvinna og fyrir það stillirðu:
- Upphafstími og lokatími: t.d. dagvinna frá 09:00 til 17:00.
- Útseld vinna: tímagjaldið sem gildir á þessu tímabili.
Yfirvinna og næturvinna
Með + Búa til tímabil bætirðu sérsniðnu tímabili við sama dag. Í Skilgreining velurðu hvort tímabilið telst Yfirvinna eða Næturvinna og stillir síðan eigin upphafs- og lokatíma og útselda vinnu fyrir það. Eyða fjarlægir sérsniðið tímabil.

Þannig skilgreinirðu dagvinnu, yfirvinnu og næturvinnu með mismunandi gjöldum. Skiptingin skilar sér svo sundurliðuð í vinnuskýrslurnar (dagvinna, yfirvinna, næturvinna).
Matarhlé
+ Skrá matarhlé skilgreinir hádegismat eða önnur hlé sem dragast frá vinnutímanum. Hádegismatur birtist sem sér dálkur í vinnuskýrslunum.
Afrita yfir á aðra daga
Búinn að stilla mánudaginn? Smelltu á Afrita yfir á aðra daga til að nota sömu stillingar fyrir alla vikuna.