Reikningastillingar

Tímagjald, VSK, eindagi, sérsniðin tímagjöld og lógó á skýrslur.

Undir Stillingar → Reikningar stillirðu grunninn fyrir alla reikningagerð.

Reikningastillingar

Grunnstillingarnar

  • Sjálfgefin útseld vinna: tímagjaldið í krónum (án vsk.) sem reikningslínur byggja á.
  • VSK (virðisaukaskattur): prósentan sem leggst ofan á, t.d. 24%.
  • Sjálfgefin eindagi reikn: fjöldi daga fram að eindaga frá útgáfu reiknings.

Sérsniðin tímagjöld

Með + Búa til nýtt gjald býrðu til fleiri tímagjöld, t.d. hærra gjald fyrir útkall eða sérfræðivinnu. Sérsniðið gjald má svo velja á verkefni eða verkþátt og þá gildir það í stað sjálfgefna gjaldsins.

Lógó á PDF-skýrslur

Undir Stillingar → Skýrsla hleðurðu upp eigin lógói sem birtist á TimeEd PDF-skýrslum. Lógóið þarf að vera 320×320 punktar, í 72 ppi upplausn og á sniðinu .jpg, .jpeg, .png eða .svg. Nánar um það í Útflutningur og samantekt frá gervigreind.

Síðast uppfært: 5. ágúst 2026

Tengdar greinar

Var þetta gagnlegt?