Reikningar í TimeEd verða til beint úr skráðum tímum, engin tvískráning.

Svona gerirðu reikning
- Farðu í Vinnuskýrslur → Reikningar.
- Veldu tímabil og síaðu eftir verkefni eða viðskiptavini eftir þörfum (sömu síur og í verkþáttaskýrslunni).
- Hakaðu við tímafærslurnar sem eiga að fara á reikninginn. Velja allt hakar við allt tímabilið í einu.
- Smelltu á ÚTBÚA REIKNING.
Færslurnar sem þú valdir verða að reikningslínum, flokkaðar á verkþætti með tímafjölda og einingarverði. Þú getur sett marga verkþætti á sama reikning en aðeins einn viðskiptavin í einu – hver reikningur fer á einn greiðanda.
Kennitala viðskiptavinar er skilyrði
Til að útbúa reikning þarf kennitala viðskiptavinarins að vera skráð – bókhaldskerfin gera kröfu um hana. Ef hana vantar birtist viðvörun í listanum og reikningagerð er óvirk fyrir þann viðskiptavin. Smelltu á Bæta við kennitölu, sláðu kennitöluna inn og vistaðu – þá er allt klárt.

Hvað fer á reikninginn?
Aðeins vinna á reikningshæfum verkþáttum er tekin með (sjá Að breyta verkþætti). Verkþættir með fast verð eru rukkaðir á föstu upphæðinni í stað tímagjalds, og vörur sem skráðar voru á verkþætti fylgja með á reikninginn.
Sjálfgefið tímagjald útseldrar vinnu, VSK-prósentu og eindaga stillirðu undir Stillingar → Reikningar, og þar má einnig búa til sérsniðin tímagjöld.