Að ganga frá og senda reikning

Yfirferð reikningslína, gjalddagi, athugasemd og sending.

Þegar reikningur hefur verið útbúinn opnast frágangssíðan þar sem þú yfirferð hann áður en hann er sendur.

Frágangur reiknings

Yfirferðin

Vinstra megin sérðu viðskiptavininn: nafn, kennitölu, síma og netfang eins og skráð er í viðskiptavinaskránni.

Hægra megin eru reikningslínurnar: verkþáttur, fjöldi klukkustunda og einingarverð án VSK. Vörur sem skráðar eru á verkþáttinn birtast líka sem línur – til dæmis efni af tengdum rafrænum reikningi, eins og rafmagnskapallinn á myndinni. Þú getur lagfært tímafjölda og verð beint í línunum, eða fjarlægt línu með rauða x-inu. Fyrir neðan sérðu heildarupphæð, VSK og samtals með VSK.

Dagsetningar og athugasemd

  • Gjalddagi á reikning og eindagi á reikning: sjálfgefinn eindagi er stilltur í Stillingar → Reikningar.
  • Athugið (valfrjálst): texti sem birtist á reikningnum, t.d. „Vegna vinnu fyrir Gæðavegur 10".

Senda eða geyma

  • Senda reikning: sendir reikninginn á viðskiptavininn.
  • Vista í drög: geymir reikninginn undir Drög að reikningum svo hægt sé að klára hann síðar.

Ef fyrirtækið notar ytra bókhaldskerfi má láta reikninga verða til sem drög þar í stað þess að sendast strax, sjá rofann Virkja drög að reikningum í ytri bókhaldskerfum undir Stillingar → Almennt (styður t.d. Payday og DK).

Síðast uppfært: 1. ágúst 2026

Tengdar greinar

Var þetta gagnlegt?