Rafrænir reikningar í valmyndinni heldur utan um rafræna reikninga fyrirtækisins, bæði senda og móttekna.

Að virkja þjónustuna
Rafrænir reikningar eru viðbótarþjónusta sem TimeEd tengir fyrir fyrirtækið þitt. Ef hún er ekki virk sérðu skilaboðin „Það er ekki búið að virkja rafræna reikninga fyrir þetta fyrirtæki ennþá":
- Smelltu á Hafa samband, eða sendu póst á hjalp@timeed.is.
- Starfsmaður hjá TimeEd aðstoðar við að tengja þjónustuna.
Rafrænu reikningarnir fara í gegnum Unimaze, skeytamiðlun fyrir rafræn viðskipti, og TimeEd sér um þá tengingu fyrir þig.
Yfirlitið

Í listanum sérðu útgáfudag, birgi ásamt kennitölu, tengdan verkþátt, gjalddaga, reikningsnúmer, upphæð og athugasemdir. Efst er leit og hægt að þrengja listann með síum:
- Dagsetningarsía: veldu tímabil útgáfudaga.
- Tenging við verkþátt: Allt, Tengt eða Ótengt – hentar vel til að finna reikninga sem á eftir að tengja.
- Sýnileiki: Allt, Sýnilegt eða Falið.


Smelltu á röð til að opna reikninginn. Þá birtast vörulínurnar – vara, magn, eining, einingaverð og samtals – ásamt heimilisfangi birgisins.

Tenging við verkþátt
Reikningur getur tengst verkþætti á tvo vegu:
- Sjálfvirkt: ef verkþáttarnúmerið (t.d. EKÓ-1) er skráð í skýringu eða tilvísun hjá versluninni þegar keypt er, tengist reikningurinn sjálfkrafa þegar hann berst. Gott ráð er að venja starfsfólk á að gefa upp verkþáttarnúmerið við kassann.
- Handvirkt: smelltu á Tengja við verkþátt í röð reikningsins, veldu verkefni (valfrjálst, þrengir verkþáttalistann) og svo verkþáttinn.

Tengdur reikningur sýnir merki verkþáttarins í listanum – smellur á merkið opnar verkþáttinn í nýjum flipa. Rauða táknið við hliðina aftengir reikninginn.

Að fela reikninga
Reikningar sem koma verkefnum ekki við – t.d. líkamsrækt eða bílaþvottur – geta safnast fyrir í listanum. Í opnum reikningi eru tveir möguleikar:
- Fela þennan reikning: felur aðeins þennan eina reikning.
- Fela framtíðarreikninga frá þessum birgi: allir reikningar frá birginum fara sjálfkrafa í felur hér eftir.
Faldir reikningar hverfa ekki – undir Stillingar finnurðu Falda reikninga og Falda birgja og birtir þá aftur þar, eða skoðar þá með Sýnileika-síunni.
