Öryggi, persónuvernd og gagnavarsla

Hvernig gögnin þín eru varin og hvað verður um þau við starfslok eða uppsögn.

Öryggi gagna

Öll vinnsla persónuupplýsinga í TimeEd fer fram í samræmi við íslensk persónuverndarlög nr. 90/2018 og aðrar viðeigandi reglugerðir. Meðal öryggisráðstafana eru:

  • dulkóðun gagna
  • öruggir netþjónar
  • daglegar öryggisafritanir

Verklag og öryggisráðstafanir fylgja nýjustu stöðlum í upplýsingatækni.

GPS og staðsetningargögn

GPS virkjast aðeins ef notandinn sjálfur samþykkir staðsetningaraðgang í appinu, og staðsetning er eingöngu skráð við upphaf og lok verks eða stimplunar, aldrei á meðan tímaskráning er í gangi. Stjórnendur sjá ekki staðsetningu starfsfólks í rauntíma eða utan vinnu. GPS-upplýsingarnar sjá aðeins notandinn sjálfur og yfirmaður hans, en aðrir starfsmenn sjá hvorki tíma hans né staðsetningar.

Gagnavarsla við starfslok eða uppsögn

Samkvæmt lögum um vinnustaðaskráningu nr. 28/2023 hefur starfsmaður tryggðan aðgang að sínum tímaskráningum í 12 mánuði eftir starfslok eða uppsögn áskriftar. Að þeim tíma liðnum er gögnunum eytt, nema önnur lög, svo sem persónuverndarlög nr. 90/2018 eða bókhaldslög nr. 145/1994, krefjist lengri varðveislu. Gögn eru þá aðeins varðveitt eins lengi og lög krefjast.

Skilmálar og persónuverndarstefna

Notendaskilmálar TimeEd eru á timeed.is/skilmalar og persónuverndarstefnan á timeed.is/personuvernd.

Síðast uppfært: 29. júlí 2026

Tengdar greinar

Var þetta gagnlegt?